Þú ert hér

Alveg einstakt umhverfi


Flughótel er búið þeim frábæra kosti að vera vel í sveit sett enda aðeins um 10 mínútna akstur á Keflavíkurflugvöll. Ekki spillir heldur nálægðin við Reykjavík, sem og Bláa lónið og Reykjanesskaga. Fjöldi skemmtilegra gönguleiða er í nágrenni hótelsins og stutt í heillandi umhverfi hafnarinnar.

 

Áhugaverðir staðir

Bláa lónið er efst á vinsældarlistanum hjá ferðafólki en Reykjanesskaginn hefur líka aðdráttarafl sem eitt af jarðfræðiundrum veraldar enda liggur um hann sprungan þar sem Evrópu- og Ameríkuflekarnir mætast. Kleifarvatn er líka eitt af stærstu stöðuvötnum landsins og ýmsir afþreyingarkostir eru í boði í nágrenninu, t.d. fuglaskoðun, gönguferðir, golf og hvalaskoðun fyrir utan bari, veitingahús og verslanir í Keflavík.

 

Skessan í fjallinu


Skessan í fjallinu flutti til Reykjanesbæjar á Ljósanótt 2008 og hefur nú aðsetur í Svartahelli við smábátahöfnina í Gróf. Þar hefur skessan búið sér notalegan helli með góðu útsýni yfir Keflavíkina og Faxaflóann. Skessan er höfundaverk Herdísar Egilsdóttur sem skrifað hefur 16 sögur um Siggu og skessuna í fjallinu en sú nýjasta fjallar einmitt um flutninginn til Suðurnesja.Hönnun hellisins, framkvæmd og gerð skessunnar var í höndum listahópsins Norðanbáls en við undirbúning verkefnisins leituðu þeir ráða hjá skessunni sem kom með ábendingar um gerð hellisins en í hann er notað efni úr nálægu umhverfi sem gerir hann samofinn landinu. Skessan er í fullri stærð og situr sofandi í ruggustól í eldhúsinu. Hægt er að senda skessunni bréf á netfangið skessan@reykjanesbaer.is

Virka daga er opnað fyrir hópa á opnunartíma safnsins frá kl. 11 - 17:00 en hellirinn er opinn um helgar frá kl. 13.00 - 17.00


Þeir sem hafa áhuga á að skoða skessuna og hellinn geta haft samband við Duushús, lista- og menningarmiðstöð Reykjanesbæjar í síma 421 3796 eða sent póst á netfangið: duushus@reykjanesbaer.is.


Vatnaveröld - sundmiðstöð

Vatnaveröld er yfirbyggður vatnsleikjagarður fyrir alla fjölskylduna.
Þar er boðið upp á fjölbreytt leiktæki fyrir yngstu kynslóðina, vatnið er upphitað og þægilegt og boðið er upp á ýmsa þjónustu. Það er frítt í sund fyrir öll börn á grunnskólaaldri. Vatnaveröld er staðsett að Sunnubraut 31, 230 Keflavík, Reykjanesbæ. Sími: 421 1500


Opnunartími: 7 til 21:00 virka daga, frá 8:00 til 18:00 laugardaga og sunnudaga

Hótel

Þú ert hér: Forsíða or Hótel or Umhverfi

Aðgerðastika

Senda síðu Prenta síðu

Language

English